Þegar par skilur vakna upp margvíslegar tilfinningar sem þörf er á að takast á við.Til að geta aðlagast að breyttum aðstæðum eftir skilnað er mikilvægt fyrir báða aðila að öðlast tilfinningalegan skilnað.Til þess þarf að viðurkenna og vinna úr sorginni og missinum sem fylgja skilnaði. Skilnaðarráðgjöf felur í sér hvoru tveggja almenna fræðslu og markvisst sáttaferli sem miðar að því að ná sátt milli foreldra um skilnaðarskilmála, til dæmis fjármál, forsjá barna, umgengni og áframhaldandi samskipti. Í skilnaðarráðgjöfinni er markvist verið að vinna að því markmiði að aðstoða foreldra við að vinna saman að hagsmunum barna sinna. SES- samvinna eftir skilnað SES- samvinna eftir skilnað er sérhæfð skilnaðarráðgjöf til foreldra barna á aldrinum 0-18 ára. Ráðgjöfin miðar að því að veita ráðgjöf og stuðning við foreldra sem eiga börn á tveimur heimilum. Meginmarkmið SES ráðgjafar er að vernda hagsmuni barnsins sem og að bæta andlega og líkamlega líðan foreldra og barns. Í gegnum SES öðlast foreldrar færni í að takast á við óvæntar uppákomur tengdar skilnaðinum og einnig auka skilning sinn á viðbrögðum barna sinna við honum.